Skilmálar

dorahansen.is er netverslun sem selur hönnunarvöru fyrir heimili og fyrirtæki. Lampar með viðarskerm úr íslenskum við, lamparnir eru allir framleiddir á Íslandi. Það á að vera  einfalt og þægilegt að versla hjá okkur og bjóðum við upp á fría heimsendingu á öllum pöntunum innan Íslands.

Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og dorahansen.is.  Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er eitta ehf., kt. 560108-1170 vsk: 96834, Norðurbakka 17.b  220 Hafnarfjörður. Fyrirtækið býr yfir mikilli hönnunarreynslu  og framleiðir  vandaða hönnun á íslandi. Einnig veitir fyrirtækið almenna þjónustu í innanhússhönnun.

Verð

Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Greiðslumöguleikar

Boðið er upp á að greiða með bankamillifærslu og greiðslukorti í netverslun dorahansen.is

Hægt er að greiða með greiðslukorti frá Visa, Eurocard/Mastercard, Amex.  dorahansen.is netverslun notar örugga greiðslugátt frá DALPAY.

Það tekur í flestum tilvikum 2-4 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en pantanir eru ekki sendar út um helgar.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaupin og er varan endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt. Varan skal vera ónotuð, henni sé skilað í góðu lagi, í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Skilafresturinn hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Bæði er hægt að endursenda vöru til Dóra Hansen Norðurbakka 17b – 304  220 Hafnarfjörður eða skila henni beint á sama stað eftir samkomulagi. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta. Skilaseðill fylgir hverri vöru.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.dorahansen.is er eign eitta ehf. Ekki má nota það í tengslum við neina aðra vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá dorahansen.is

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.